-
Eygló í samfélaginu í nærmynd
Eygló Rúnarsdóttir, formaður FFF, ræddi um frítímann og Félag fagfólks í frítímaþjónustu í Samfélaginu í nærmynd mánudaginn 7. júní. Á vef Ríkisútvarpsins, www.ruv.is, er hægt að hlusta á viðtalið.
-
VIRÐING OG UMHYGGJA – Á VETTVANGI FRÍTÍMANS
Fimmtudaginn 27.mars sl. hélt fagfélagið hádegisverðarfund undir yfirskriftinni Virðing og umhyggja – Á vettvangi frítímans. Á fundinum flutti dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor í uppeldis-menntunarfræðum við Háskóla Íslands, erindi sem hún byggði á nýútkominni bók sinni, Virðing og fagmennska – Ákall 21.aldarinnar. Í erindinu fjallaði hún um ígrundun fagfólks á starfi sínu og starfsumhverfi, sjálfsvirðingu fagstétta…
-
HÁDEGISVERÐARFUNDUR Á KAFFI SÓLÓN 24. JANÚAR
Næsti hádegisverðarfundur FFF verður FIMMTUDAGINN 24. janúar á efri hæð Kaffi Sólón í Bankastræti kl: 12:00. Andri Ómarsson, B.A. í tómstunda og félagsmálafræði frá KHÍ, mun fjalla um lokaverkefnið sitt í tómstundafræði sem fjallar um hvað unglingar telja sig læra af því að starfa í ungmennaráði. Sjáumst á Kaffi Sólón. Útdráttur úr ritgerðinni: Tilgangur með starfi ungmennaráða er…
-
TÓMSTUNDIR OG FRÍTÍMINN
Málstofa 29. nóvember í Bratta, Kennaraháskóla Íslands Málstofuna halda nemendur og kennarar í námskeiðinu tómstundafræði, sem er hluti af nýju meistaranámi í tómstunda- og félagsmálafræðum við KHÍ. Allir eru velkomnir, ekkert kostar en hægt er að kaupa kaffi, mat og meðlæti í mötuneyti skólans. 08.45 Skráning og afhending gagna 09.00 Setning Árni Guðmundsson aðjúnkt KHÍ 09.15 Elskað barn…
-
HELSTU NIÐURSTÖÐUR MÁLÞINGSINS
Eygló Rúnarsdóttir, varaformaður FFF hefur tekið saman helstu niðurstöður málþingsins sem félagið hélt 27. október síðastliðinn. Þær hafa nú bæst við frétt um vel heppnað málþing, þar sem er einnig hægt að nálgast glærur fyrirlesaranna.
-
VERNDUM ÞAU
Í síðustu viku sóttu 80 starfsmenn Gufunesbæjar í Reykjavík tvö námskeið Verndum þau á vegum FFF. Námskeiðin eru haldin af fagfélaginu í samstarfi við höfunda bókarinnar Verndum þau, Ólöfu Ástu Farestveit og Þorbjörgu Sveinsdóttur, með stuðningi frá Menntamálaráðuneytinu og eru ætluð öllum þeim sem vinna með börnum og unglingum. Ráðuneytið, FFF og höfundar bókarinnar gerðu…
-
FÉLAGSMIÐSTÖÐVADAGURINN
Í dag, miðvikudaginn 7. nóvember, standa félagsmiðstöðvar ÍTR fyrir félagsmiðstöðvadeginum í Reykjavík. Dagurinn er samstarfsverkefni þeirra 20 félagsmiðstöðva sem starfa í Reykjavík og verða allar félagsmiðstöðvarnar opnar fyrir gesti og gangandi frá kl. 18 til kl. 21 þennan dag. Í tilefni félagsmiðstöðvadagsins var félagsmiðstöðvablaðinu UNG dreift með Fréttablaðinu þriðjudaginn 6.nóvember. Félagsmiðstöðvadagurinn er nú haldinn þriðja…
-
VEL HEPPNAÐ MÁLÞING
Málþing FFF, Hver vinnur með börnunum okkar í frítímanum?, fór fram á Grand Hótel laugardaginn 27. október síðastliðinn. Málþinginu, sem var öllum opið, var ætlað að varpa ljósi á gildi og viðmið mismunandi faghópa sem starfa á vettvangi frítímans, sem og hvað kröfur félagasamtök, opinberir aðilar og aðrir sem bjóða upp á starf fyrir börn og unglinga í…
-
HVER VINNUR MEÐ BÖRNUNUM OKKAR Í FRÍTÍMANUM?
Stjórn Félags fagfólks í frítímaþjónustu hefur ákveðið að efna til málþings undir heitinu “Hver vinnur með börnunum okkar í frítímanum?” laugardaginn 27. október n.k. frá kl. 13:00 til 17:00 á Grand Hótel. Málþinginu, sem er öllum opið, er ætlað að varpa ljósi á gildi og viðmið mismunandi faghópa sem starfa á vettvangi frítímans, sem og hvað kröfur félagasamtök, opinberir…
-
MEISTARANÁM Í KHÍ
Í haust nk. hefst meistaranám í tómstundafræðum og þroskaþjálfafræðum við Kennaraháskóla Íslands. Þetta mun vera “nýtt” nám við Kennaraháskóla Íslands, þ.e. nýtt skipulag sem meðal annars felst í því að nemendum á öllum brautum gefst nú kostur á að lengja nám sitt í 5 ár og taka meistaragráðu. Því hefst meistaranám í tómstundafræðum haustið 2007.…