Starfsáætlun stjórnar fyrir veturinn 2015/2016. Starfsáætlun þessi var útbúin á starfsdegi stjórnar föstudaginn 28. ágúst 2015. Það má með sanni segja að það sé skemmtilegur vetur framundan!
Fræðslumál
- Skipa öfluga fræðslunefnd
- Halda tvo hádegisfundi á önn
- Halda námskeið í samstarfi við Háskólann
- Halda grunnámskeið í fagstarfi á frístundaheimilum
Markaðsmál
- Vera virk í markaðssetningu á félaginu og starfsemi þess
- Senda bréf á nýútskrifaða tómstundafræðinga og kynna félagið
- Kynna félagið fyrir nemum í tómstunda- og félagsmálafræði
- Halda kynningu á fagfélaginu í nágrannasveitarfélögum
- Kynna félagið á námskeiðum á vegum þess og ráðstefnum
- Fá alla meðlimi FFF í Facebook grouppu félagsins – Búa til öflugan umræðuvettvang
- Uppfæra kynningarbækling og prent til að dreifa á námskeiðum
- Prenta kynningar veggspjald og senda á starfsstöðvar
- Fá 45 nýja félaga í félagið á starfsárinu
Samstarf
- Finna nýjan tengilið FFF hjá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu
- Áframhaldandi samstarf við Mennta- og menningarmálaráðuneytið, æskulýðsvettvanginn, æskulýðsráð, Samfés, FÍÆT og Háskólann
- Áframhaldandi samstarf vegna Tómstundahandbókar
- Sækja um Strategic partnership styrk í samstarfi við Fritidsforum
- Vinna í samstarfi við önnur norðurlönd að stofnun IFS Norden
- Áframhaldandi samstarfs við orðanefnd í tómstundafræðum