admin
-
-
Fundargerð aðalfundar 2023
Gjaldkeri og varaformaður kynna skýrslu stjórnar. Yfir veturinn voru haldnar 8 fræðslur en ein féll niður vegna dræmrar skráningar. Haldið var áfram með hringferð sem gekk ekki nógu vel en verður haldið áfram næsta starfsár. Veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi lokaverkefni og farin var vel heppnuð fræðsluferð til Malmö og Gautaborgar sem var styrkt af…
-
Fundur stjórnar í apríl
Mætt eru: Ágúst, Gísli, Peta, Íris og Ásgerður.Fimmtudagurinn 30. marsStaður: Rafrænt á ZoomFundur settur kl. 08:30 Síðasti viðburður gekk mjög vel, góð mæting og líflegar umræður sköpuðust um aðgengismál í frístundastarfi. Alexander Harðarson var með kveikju í upphafi og stýrði umræðum í kjölfarið. Viðburðurinn var haldinn í Stakkahlíð. Næsti viðburður er hringferðin sem er á…
-
Fundur stjórnar í mars
Mætt eru: Ágúst, Elísabet, Gísli, Birna og PetaFimmtudagurinn 2. marsStaður: Brauð og co. LaugavegiFundur settur kl. 09:00 Síðasti viðburður var umræðufundur um utanlandsferð. Árni Guðmundsson er búinn að leggja mikla vinnu í skipulag námsferðar til Svíþjóðar og á skilið hrós fyrir. Ferðin verður 25. – 29. apríl. Næsta fræðsla er fræðsla og umræður um aðgengi…
-
Fundur stjórnar í febrúar
Mætt eru: Ágúst, Elísabet, Gísli og PetaFimmtudagurinn 2. febrúar Staður: Brauð og co. LaugavegiFundur settur kl. 09:00 Síðasta fræðsla gekk ekki nógu vel þar sem mjög fáir mættu. Rætt hvort efnið hafi mögulega ekki vakið áhuga, hvort betra hefði verið að fræðslan væri fókusuð á hatursorðræðu, viðbrögð við henni o.þ.h. Einnig gæti veðrið hafa verið…
-
Yfirlýsing
Í ljósi umræðu og aðstæðna í samfélaginu um þessar mundir og fyrirætlanir Reykjavíkurborgar um niðurskurð á starfi félagsmiðstöðva sjáum við í stjórn Félags fagfólks í frístundaþjónustu (FFF) okkur knúin til að senda frá okkur eftirfarandi yfirlýsingu um stöðu mála. Félagsmiðstöðvar hafa löngu sannað gildi sitt frá því að þær fyrstu skutu upp kollinum hér á…
-
Fundur stjórnar í desember
Mætt eru: Gísli, Elísabet, Ásgerður, Peta, Íris, Ágúst og BirnaFimmtudagur 1. desemberStaður: Brauð og Co. á LaugavegiFundur settur kl. 9:00 Síðasta fræðsla gekk vel og var góð mæting. Ábending barst frá gesti að gott hefði verið að stytta fyrirlesturinn/erindið sjálft og skapa þannig rými fyrir meiri umræður. Stjórn tekur þessa ábendingu til greina og hefur…
-
Fundur stjórnar í nóvember
Mætt eru: Gísli, Elísabet, Ásgerður, Peta, Íris og BirnaFimmtudagur 3. nóvemberStaður: Brauð og Co. á LaugavegiFundur settur kl. 9:00 Næsta fræðsla er í höndum Ágústs og mun Peta sjá um veitingar. Elísabet fór á kynningu í október um styrki til félagasamtaka frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og sagði stjórn frá því helsta sem þar fór fram.…
-
Fundur stjórnar í október
Mætt eru: Ágúst, Birna, Elísabet, Peta, Íris og GísliFimmtudagur 6. október 2022Staður: Brauð og Co. á LaugavegiFundur settur kl. 8:40 Verðlaun fyrir fyrirmyndarverkefni heldur áfram í samstarfi við FÍÆT og námsbrautina og taka Ágúst og Elísabet það að sér. Fræðsla næstu viku verður í Stakkahlíð og er Birna í sambandi við Trausta og Bjarna. Tómstundadagurinn…
-
Fundur stjórnar í september
Mætt eru: Gísli, Ágúst, Peta og Íris.Fimmtudagur 8. septemberStaður: Kaffitár, BorgartúniFundur settur kl. 8:50 Utanlandsferð stjórnar var rædd og er fyrirhugað að fara til Tenerife í nóvember en tveir meðlimir stjórnar fóru þar á námskeið á síðasta starfsári fyrir hönd félagsins. Ferðin er hluti af styrk frá Erasmus+. Fræðsludagskrá er í vinnslu og búið er…