Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. febrúar 2009.
Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
- · Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
- · Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
- · Nýjungar og þróunarverkefni.
- · Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði, né ferðir hópa. Menntamálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.
Nánar á heimasíðu Menntamálaráðuneytisins.