Miðvikudagurinn 2. september 2020.
Mættir: Gísli Felix, Ágúst Arnar, Íris Ósk, Sveina Peta, Birna og Elísabet.
Fundur settur kl. 11:00
- Plakat og prentun
- Plakatið er tilbúið og verður prentað í 300 eintökum í stærð A3. Peta ætlar að fá tilboð í prentun.
- Sendum kynningarbréf um félagið og starfsemi okkar með plakötunum til sveitarfélaga sem Íris skrifar.
- Fræðsla mánaðarins: Kynning á VAXA appinu
- Fræðslan verður í hádeginu. Reynum að fá stofu í Stakkahlíðinni fyrir fræðsluna – Ágúst hefur samband við Árna Guðmunds og athugar hvort hægt sé að bóka stofu eins og staðan er í dag.
- Plan B er rafræn fræðsla.
- Heimasíða og félagsgjöld
- Gísli ætlar að reyna að finna leið til að hægt sé að skrá sig úr félaginu eða breyta skráningu inni á heimasíðunni. Stefnt er að því að senda leiðbeiningar um þann möguleika með rukkun félagsgjalda í september. Peta verður með í þeirri vinnu.
- Auglýsing fyrir fræðslu
- Gísli ætlar að græja auglýsingu um fræðsluna um VAXA appið og setja á miðlana okkar þegar hann er kominn með allar upplýsingar frá Ágústi og Ara.
- Elísabet tekur saman smá frétt að fræðslunni lokinni til að deila á miðlunum.
Fundi slitið kl. 12:08