Miðvikudagurinn 7. október 2020
Mættir: Ágúst, Íris, Peta, Elísabet og Birna.
Fundur settur kl. 11:30
- Staðan á plakötum
Fyrsta prentun kláraðist og eru þau plaköt að mestu komin til skila. Við þurftum því að prenta fleiri og eiga þau að vera tilbúin til dreifingar fyrir helgi. - Dagskrá vetrarins
Fræðslumál ganga vel. Við keyptum eins árs áskrift að Zoom forritinu sem við munum nýta í fræðslurnar. Höldum áfram að nota það þótt Covid-19 ástandinu ljúki. Þannig getum við boðið öllum óháð aðstæðum og búsetu að fylgjast með fræðslum fagfélagsins og sjá allt það frábæra starf sem verið er að vinna á vettvangi. Forritið virkar líka mjög vel m.t.t. upptökumöguleika og þannig getum við safnað saman fræðslunum og deilt þeim á netinu. - Samstarfsverkefni með Samfés
Stjórn samþykkir að Ágúst og Íris haldi áfram viðræðum við Samfés vegna hugsanlegs samstarfsverkefnis. - Samstarfsverkefni með FÍÆT
Íris er í viðræðum við FÍÆT um aukið samstarf félagana á milli og kynnir stjórn stöðu mála eftir því sem verkefnið þróast. - Heimasíða félagsins
Allur texti ætti að hafa verið uppfærður en allir stjórnarmeðlimir eru beðnir um að lesa yfir síðuna til að tryggja að ekkert gleymist. Ef einhverjar villur finnast á að láta Gísla vita og hann lagar þær. - Félagsgjöld
Peta segir að þau verði send út á næstu dögum en bankinn er að vinna í að lagfæra smávægilega villu sem kom upp og sendir þau svo frá sér. - Hlutverk stjórnarmeðlima.
Búið er að vinna skjal þar sem búið er að skipta hlutverkum og ábyrgð á milli stjórnarmeðlima sem allir í stjórn eiga að skoða og koma með athugasemdir og ábendingar ef einhverju þarf að breyta.