Fundur stjórnar 3. febrúar 2021
Mættir: Peta, Gísli, Ágúst, Elísabet, Birna
Fundur settur kl. 10:30
- Félagsgjöld. Greiðslur koma inn hægt og rólega. 107 hafa greitt, 5 verið niðurfelldir og 111 ógreiddir.
- Umræðufundur í næstu viku. Samkvæmt dagskrá er á dagskrá umræðufundur um kjaramál tómstundafræðinga. Stjórn telur að mikill áhugi sé til staðar á umræðum um kjaramálin og ætla Ágúst og Birna að byrja með kveikju og stýra aðeins umræðum. Gísli tekur að sér að skrifa niður punkta.
- Beiðni um samstarf. Samtökin Professional open youth work in Europe (POYWE) hafa óskað eftir fundi með stjórn fagfélagsins og ætla Ágúst og Gísli að taka það að sér.
- Önnur mál.
- Stefnt er að því að hafa vinnufund stjórnar á næstunni til að undirbúa aðalfund og stjórnarskipti.
Fundi slitið kl. 11:25