Mættir eru: Gísli, Elísabet, Ágúst, Íris og Peta.
Mánudagur 4. apríl
Fundur settur kl. 09:00
Staður: Kaffitár, Nýbýlavegi
- Síðasta fræðsla var á Aflagranda þar sem við fengum kynningu á hugmyndafræði Samfélagshúsa og átaksverkefni frá Skagafirði í félagsstarfi eldri borgara. Tæknin truflaði okkur töluvert en það heppnaðist með góðri aðstoð Eyglóar og Árna Guðmunds. Þátttaka hefði mátt vera betri en fræðslan flott engu að síður.
- Næsta fræðsla er síðasti hlekkur hringferðarinnar. Farið verður á Dalvík þar sem Gísli heimamaður er að redda öllu fyrir okkur á staðnum. Peta átti að fara en kemst ekki vegna vinnu svo Elísabet ætlar að fara með Ágústi í staðinn.
- Undirbúningur aðalfundar. Salurinn í Holtinu var bókaður fyrir nokkru síðan og verður fundurinn haldinn þar. Boðið verður upp á léttar veitingar. Boðið verður upp á fræðslu fyrir aðalfundinn en á dögunum barst okkur beiðni frá félagsmanni að kynna námskeið sem hún fór á nýlega.
- Erasmus+. Öllum gögnum hefur verið skilað fyrir styrkumsókn og beðið er eftir niðurstöðu.
- Önnur mál
- Stefnt er að því að boða til fundar með stjórn og fulltrúum Sameykis fljótlega og verður það með stuttum fyrirvara. Fundarefnið er stofnun fagdeildar Tómstunda- og félagsmálafræðinga.
Fundi slitið kl. 09:43