Föstudagurinn 5. apríl
Mættir: Jóna Rán, Gísli Felix, Gissur Ari, Bjarki Már, Guðmundur Ari og Esther Ösp.
Fundur settur kl. 12:45
- Ferðin til Helsinki
- Á næstu dögum verður send út dagskrá með nákvæmari tímasetningum á heimsóknum, samverustundum og frítíma.
- Bootcamp og ný samstarfsverkefni
- Guðmundur Ari segir frá einu verkefni sem er í startholunum með sömu samstarfsaðilum og í Bootcamp verkefninu og snýr að því að búa til matstæki sem metur raunhæfni þátttakenda í einhverjum ákveðnum verkefnum.
- Ástralíudraumurinn lifir. Eistarnir voru að senda ósk um strategic partnership með fagfélaginu og áströlsku tengiliðunum sem snýr að siðareglum frístundastarfs og kortleggja hvernig þær eru notaðar í mismunandi löndum, búa til námskeið út frá þeim e.t.v. og nota þær til ígrundunar
- Bootcamp hópurinn ætlar að setja saman annað strategic partnership tengt LifeQuest sem mun þá byggja ofan á appið og fara með það lengra.
- Guðmundur Ari sagði frá ferð sinni til Svíþjóðar þar sem var verið að ræða eignarhald á afurðinni frá Bootcamp verkefninu, LifeQuest appinu. Planið er að búa til fyrirtæki í kringum appið og fagfélagið ætti þá fjórðungshlut í því með möguleika á kaupum á fjórðungshlut til viðbótar. Eins og stefnan er verður appið tlibúið til notkunar í ágúst og fyrirtæki tilbúið utan um það.
- Aðalfundur
- Bjarki, Gísli og Gissur sitja áfram í stjórn. Jóna býður sig ekki fram fyrir næsta starfsár.
- Rætt um hvort taka ætti upp greiðslur til formanns/stjórnarmanna þegar stærri verkefni koma til. Þessi punktur verður settur í skýrslu stjórnar fyrir næstu stjórn.
- Staðsetning aðalfundar. Bjarki og Gissur fara í það mál og heyra í mögulegum stöðum og bóka.
Fundi slitið kl. 13:40