4. fundur haldinn á Fríkirkjuvegi 11 þann 28. september 2005
Mættir: Margrét, Steingerður og Trausti. Héðinn og Sóley upptekin.
- Tekið fyrir eftirfarandi erindi frá Maríu Björk Ingvadóttur:
Blessaður formaður góður !
Við vorum að ljúka stjórnarfundi í Samfés þar sem ég tók upp málefnið : Hvernig eru skipurit um félagsmiðstöðvar á Íslandi , hvar er starfsfólki þeirra raðað í launaflokka ? Hversvegna er ekki til starfsmat hjá Samtökum sveitarfélaga um nema Frístundaleiðbeinanda 1 og frístundaleiðbeinanda 3 ? Hvernig menntun og reynslu hefur obbinn af starfsmönnum félagsmiðstöðva á landinu ?
Í framhaldi af þessum umræðum var ég hvött til að koma þeim áleiðis til þín vegna fyrsta fundar hjá fagfélaginu.
Mér datt í hug hvort ekki ætti að safna saman upplýsingum um þetta hjá Sveitarfélögum og þá væri gott að ræða hver gerir hvað , svo allir séu ekki að vaða í þetta. Þá á ég við FFF og/eða Samfés.
Viltu skoða málið og heyra svo í mér.
Kær kveðja
María Björk
– Ákveðið að svara erindinu með eftirfarandi hætti:
Sæl María.
Eftir umfjöllun um erindi þitt á stjórnarfundi er niðurstaðan sú að Félag fagfólks í frítímaþjónustu er ekki skilgreint sem stéttarfélag, hvað sem síðar verður.
Því er að tillaga stjórnar að þetta mál fari til viðkomandi stéttarfélags til umfjöllunar og upplagt fyrir landssamtök á borð við Samfés að skoða þetta mál.
kær kveðja
f.h. stjórnar FFF
Steingerður Kristjánsdóttir
- Ákveðið að skipta í 5 hópa sem fjalla um eftirfarandi:
- Að leggja áherslu á mikilvægi frítímaþjónustu sveitarfélaganna fyrir börn, unglinga og ungt fólk – Að leggja áherslu á mikilvægi sérþekkingar fagfólks í frítímaþjónustu.
- Að efla fagvitund og samheldni fagfólks í frítímaþjónustu með því að skapa félögum vettvang til umræðna og skoðanaskipta- Að vera leiðandi í faglegri umræðu og stjórnvöldum til ráðgjafar um frítímaþjónustu.
- Að efla samstarf við önnur félög sem starfa með börnum, unglingum og ungu fólki í frítímanum, innan lands sem utan.
- Að hvetja til aukinna rannsókna og eflingar menntunar á sviði frítímaþjónustu
- Heimasíða FFF – Tillögur að ritstjórn, uppbygging, innihald, ……………
- Ákveðið að kjósa um tvö lén á fundinum www.fff.is og www.fagfelag.is
- Steingerður tók að sér að senda fréttatilkynningu í fjölmiðla
- Trausti tók að sér að senda aftur út áminningu um fundinn
- Margrét tók að sér að heyra í Héðni um myndavél, skjávarpa, flettitöflu, túss og kennaratyggjó. Hvort hægt sé að hella upp á kaffi
- Steingerður tekur með sér fartölvu
- Ákveðið að bjóða upp á kaffi og kleinur og láta standa samskautabauk fyrir kaffinu
- Sóley er beðin um að koma með breytingarnar sem hún ætlaði að gera á vinnuplagginu ( demantinum) á næsta fund
- Steingerður tók að sér að setja siðareglurnar í umfjöllun hjá siðfræðingi sem kom með athugasemdir um þær( verður ekki tekið fyrir á fundinum)
- Steingerður ljósritar umsóknareyðublöð til að hafa fyrir fundinn.
Fundi slitið kl. 17.15