Stjórn félags fagfólks í fríttímaþjónustu
3. fundur – 24. ágúst 2005 haldinn á Fríkirkjuvegi 11 kl. 16.30
Mætt: Steingerður, Margrét, Sóley og Trausti
- Staða frístundaheimila í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum. Vill félagið standa að ályktun? –Máli frestað þar til síðar á fundinum.
- Steingerður leggur fram plagg með þeim breytingartillögum sem fram komu á stofnfundi félagsins. Vangaveltur um 5. grein og 10. grein en Steingerður setur þær inn í plaggið.
- Aðalfundur. Héðinn hefur fengið sal Taflfélagsins í Kópavogi og Árni Guðmundsson hefur tekið að sér að vera fundarstjóri. Fundurinn verður laugardaginn 8. október kl. 13-16, hefst með aðalfundi og verður svo breytt í almennan félagsfund þar sem unnið verður að starfsáæltun og áherslupunktum félagsins.
Ákveðið að fundarboð verði sent með tölvupósti á félaga, áhugasamt fólk og á helstu lista tengda félaginu, s.s. Samfés, ÍTR, ÍTK, sveitarfélögin o.fl. - Steingerður leggur til að á félagsfundi verði félagsfólki skipt niður í hópa til að vinna að áætlun um hvernig ná skuli markmiðum félagsins. Hægt er að notast við demantalíkan Dýrfjörð-systra við vinnuna. Sóley tekur að sér að aðlaga demantalíkanið að þessari vinnu.
- Steingerður leggur til að farið verði í sumarbústað helgina eftir aðalfund þar sem stjórnin vinni úr tillögum félagsfólks frá aðal- og félagsfundi vikunni áður. Sumarbústaðarferðin verði farin snemma morguns, unnið frameftir degi og endað með fjölskyldugrilli. Stefnt er að 15. október 2005.
- Umræður um félagsgjald. Stjórn mun leggja fram þrjár tillögur um félagsgjald, 2.500, 3.500 og 5.000 krónur. Öðrum félögum er velkomið að koma með aðrar tillögur.
- Aftur að ályktun. Sóley bendir á að í samþykktum lögum félagsins kemur fram að félagið leggi áherslu á mikilvægi frítímaþjónustu sveitarfélaganna fyrir börn, unglinga og ungt fólk. Steingerður vill vera viss um að félagsfólk hafi allt sama skilning á hlutunum og því fara sér hægt í upphafi. Umræður um stuðningsyfirlýsingu við fagfólk á frístundaheimilum, því starfsfólkið sem er stór hluti félagsfólks þarf svo innilega á því að halda í augnablikinu að mati Sóleyjar. Sóley kemur með tillögur að bréfum eða ályktunum á næsta fund og þá verður málið tekið upp aftur.
- Fundi slitið kl. 18.00.