Fundur í stjórn Félags fagfólks í frítímaþjónustu haldinn í Perlunni, Reykjavík og hófst fundurinn kl 12.00.
Mættir: Margrét Sigurðardóttir formaður, Eygló Rúnarsdóttir varaformaður, Andri Ómarsson umsjónarmaður heimasíðu/meðstjórnandi, Héðinn Sveinbjörnsson gjaldkeri. Auk þess mætti á fundinn Nilsína úr varastjórn. Heiðrún boðaði forföll.
Dagskrá fundarins:
1. Málþing félags fagfólks í frítímaþjónustu.
Það hafa borist svör frá FÍÆT, ÍSÍ, UMFÍ, Bandalagi íslenskra skáta, KFUM KFUK. Þessi félög og samtök ætla öll að senda fyrirlesara á málþingið sem haldið verður þann 27. október næstkomandi.
2. Verkskipting innan stjórnar FFF varðandi málþingið:
§ Andri :
o Klára auglýsingu og senda út á aðildarsamtök málþingsins og menntamálaráðuneytið.
o Senda fréttatilkynningu á fjölmiðla (miðvikudaginn 24. okt.)
o Klára kynningarbækling FFF
o Andri verður tæknimaður á málþinginu.
- Héðinn:
o sér um skráningu á málþingið, skráning fer fram í gegnum fagfélagspóstinn.
o Leigja posa
o Héðinn og Nilsína taka við greiðslum á málþinginu. - Eygló:
o verður umræðustjóri, þ.e.a.s. hefur umsjón með hópavinnu á málþingi.
o Gengur frá kynningarbæklingi ásamt Andra - Margrét:
o setur sig í samband við fyrirlesara og óskar eftir því að þeir sendi fyrirlestra til fagfélagsins fyrir 27. okt. Þannig að hægt sér að undirbúa ítarefni o.s.fv.
o Talar við Lindu Udengaard um að taka að sér hlutverk málþingsstjóra. - Heiðrún verður málþingsritari, þ.e.a.s. ritar niðustöður hópaumræðna.
3. Náum áttum.
Eygló talar við Steingerði Kristjánsdóttur varamann í stjórn um það að vera okkar fulltrúi í Náum áttum samstarfinu. Næsti fundur hjá samstarfshópnum verður 7. nóvember n.k.
4. Umsóknir í FFF
Umsókn Ragnheiðar Stefánsdóttur lögð fyrir og samþykkt einróma.
Fundi slitið klukkan 13:30
Margrét Sigurðardóttir ritari