Fagfélag fólks í frítímaþjónustu, fundur 5. janúar 2015 í Hinu húsinu kl. 12:00-13:00
Mættir: Guðmundur Ari, Heiðrún, Bjarki og Elísabet
Undirritun stjórnarskipta
Það hefur gengið erfiðlega að ganga frá stjórnarskiptum. Þau hafa ekki verið gerð formlega í langan tíma en því verður nú breytt og gengið frá nauðsynlegum undirritunum og pappírsmálum sem þessu fylgja.
Umsókn í félagið
Alls hafa 10 einstaklingar sem sótt um félagaaðild frá síðasta stjórnarfundi. Voru þessar umsóknir teknar fyrir á fundinum:
– Særós Rannveig Björnsdóttir samþykkt
– Andrea Marel samþykkt
– Sandra Gísladóttir samþykkt
– Lovísa Hafsteinsdóttir samþykkt
– Kristján Sigurðsson samþykkt
– Agnes Helga Sigurðardóttir samþykkt
– Lúðvík Gunnarsson samþykkt
– Ása Kristín Einarsdóttir samþykkt
– Sandra Dís Garðardóttir samþykkt
– Snorri Páll Þórðarson samþykkt
Vill stjórnin bjóða þessa einstaklinga hjartanlega velkomna í félagið.
Ferðaundirbúningur
Stjórn hugar að því að boða til fundar vegna ferðarinnar til Svíþjóðar. Áætlað er að halda fund í janúar með þeim félagsmönnum sem eru að fara með í ferðina. Sjórn ræðir að æskilegt sé að fá þátttakendur til að taka að sér verkefni sem snúa að ferðinni.
Fundur verður haldinn þriðjudaginn 20. janúar í hádeginu á Sólon. Stjórn ætlar að reyna að hittast fyrir hádegisfundinn og undirbúa kynninguna á ferðinni.
Stjórn sendir út fyrirspurn til samstarfsaðila í Svíþjóð og forvitnast um hvar best sé að gista og fleira.
Breytingar á lögum og markmiðum
Stjórn veltir fyrir sér hvernig er best að vinna breytingar á lögum og markmiðum félagsins. Í fyrra var nefnd sem velti fyrir sér inntökuskilyrðum og hlutverki félagsins. Stjórn ákveður að koma með tillögu að breytingum á lögum og markmiðum félagsins á næsta aðlfundi. Þarf að senda lagabreytingartillöguna út tímanlega fyrir næsta aðalfund. Þess má geta að næsti aðalfundur er jafnframt 10 ára afmælisfundur félagsins.
Fundargerð ritar
Bjarki Sigurjónsson