Mættir: Hulda, Guðrún, Bjarki og Ari.
- Heimasíðumál – Ari fer yfir stöðuna á heimasíðunni. Myndir á heimasíðu – félaginu vantar myndir úr starfinu. Guðrún sendir beiðni til forstöðumanna frístundamiðstöðva SFS og Hulda sendir á Samfés.Senda póst á félagsmenn – óska þarf eftir hugmyndum og væntingum félagsmanna til nýrrar heimasíðu. Stjórn verður að gera eina frétt eftir hvern fund.
- Greinargerð vegna styrks frá menntamálaráðuneytinu – Hulda fer yfir stöðuna. Tilkoma styrkisins er vegna Kompás námskeiða á vegum félagsins. Lokagreiðsla styrksins er greidd eftir að greinargerð er skilað og samþykkt af ráðuneytinu. Búið er að samþykkja greinargerðina. Hulda fylgir þessu eftir þar til greiðsla berst.
- Samstarf við æskulýðsvettvanginn vegna Kompásnámskeiðs. Hulda heyrir í Elísabet og athuga hvort hún vilji áfram vera tengiliður.
- Bréf til Fjallabyggðar – Hulda sendir tölvupóst á Gísla til að athuga stöðu mála. Engin viðbrögð hafa borist á frá Fjallabyggð.
- Íslenskar æskulýðsrannsóknir 29. nóvember 2013 – stjórn mun gera frétt um viðburðinn á heimasíðu.
- Uppfærsla félagatals – stjórn hefur fengið tilkynningu um félagsmann sem hefur brotið á siðareglum félagsins. Félagsmanni er vísað úr félaginu samkvæmt 9. gr. í siðareglum félagsins.
- Fræðslumál – óskað verður eftir áframhaldandi vinnuframlagi þeirra Jakobs og Eyglóar ásamt Huldu í vinnuhóp sem snýr að fræðslu. Kompás, reynslunám, samstarf við HÍ og hádegisfundur er meðal þess sem var gert síðasta starfsár. Komið er með tillögu um að brjóta hádegisfundina meira upp í smiðjur. Kynna verður fagfélagið í grunnfræðslu félagsmiðstöðva og einnig fyrir nemum í tómstunda- og félagsmálafræði.
- Kynningarbæklingurinn – GBF uppfærir texta og mun senda á Ara sem veitir bæklingum nýtt útlit í kjölfarið.
- Umsóknir í félagið. Fimm umsóknir bárust félaginu til úttektar og voru allar fimm samþykktar.
- Starfsdagur stjórnar – áætlað er að hafa starfsdag 11. október kl. 9-12. Guðrún Björk mun græja staðsetningu.
Næsti fundur stjórnar er þann 9. september n.k. kl. 11:15 á Amokka, borgartúni.
Fundargerð ritar Guðrún Björk Freysteinsdóttir.