Íslenskuennsla fyrir útlendinga |
Erindi frá Framvegis – mistöð símenntunar
Sem kunnugt er þá veitti ríkisstjórn Íslands 100 milljón krónum til íslenskukennslu fyrir útlendinga. Fyrirkomulag er með þeim hætti að fræðsluaðilar sækja um styrk til námskeiða til menntamálaráðuneytisins. Af samtölum mínum við ráðuneytismenn má ráða að ekki er gert ráð fyrir að námskeið verði að fullu styrkt. Hugtakið króna á móti krónu er sennilega það sem lýsir væntingum ráðuneytisins best. Framvegis- miðstöð um símenntun, mun þegar á vorönn, ef næg þátttaka fæst og ef af styrkveitingu verður, bjóða upp á námskeið sem sérstaklega verða sniðin að þörfum félagsmanna innan BSRB og innan opinbera geirans. Þegar er ákveðið að sníða eitt námskeið sérstaklega að starfstengdri íslensku í heilbrigðisgeiranum. Varðandi önnur námskeið þá er gert ráð fyrir að þau byggi fyrst og fremst á talþjálfun og hugtakanotkun. Hjá okkur munu starf reyndir kennarar á þessu sviði. Framvegis áætlar að kennsla fari að mestu fram í húsnæði Framvegis að Síðumúla 6 en einnig eru möguleikar á því að kenna á vinnustöðum sem og úti á landi. Gert er ráð fyrir 30 ke.st. námskeiðum. Þátttökugjald er áætlað 25. þúsund á þátttakanda*. Það er jafnframt sú niðurgreiðsla sem kæmi frá viðkomandi starfsstað eða í gegnum endurmenntunarsjóði ef gert er ráð fyrir að námskeiðin séu ókeypis fyrir viðkomandi félagsmann. Erindi með þessu bréf ér því að fara þess á leit að þið takið þetta málefni upp hvert í sínum ranni og látið okkur vita um áhuga á þátttöku í þessu mikilvæga verkefni. Kveðjur Árni Guðmundsson |