Mætt eru: Gísli, Elísabet, Ásgerður, Peta, Íris og Birna
Fimmtudagur 3. nóvember
Staður: Brauð og Co. á Laugavegi
Fundur settur kl. 9:00
- Næsta fræðsla er í höndum Ágústs og mun Peta sjá um veitingar.
- Elísabet fór á kynningu í október um styrki til félagasamtaka frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og sagði stjórn frá því helsta sem þar fór fram. Hægt er að sækja bæði um verkefnastyrki en einnig um rekstrarstyrk sem getur verið veittur til tveggja ára í senn. Stjórn felur Elísabetu og Petu að undribúa umsókn um rekstrarstyrk en umsóknarfrestur er 14. nóvember.
- Tómstundadagurinn er 25. nóvember og þarf að taka umræðu um hvort miðað verði við þá dagsetningu á næstu árum þegar félagið mun taka að sér skipulag dagsins.
- Íris mun taka við óskum frá stjórnarmönnum um ferðir til Færeyjar og Grænlands og verður dregið um hver fer í hvaða ferð.
Fundu slitið 9:40