Fundur stjórnar í janúar

Mættir eru: Gísli, Elísabet, Ágúst, Íris, Ásgerður, Peta og Birna
Miðvikudagur 5. janúar 2021
Fundur settur kl. 08:45
Staður: ZOOM

  1. Næsta fræðsla – Hringferð Austurland. Allur undirbúningur fyrir austan er kominn vel á veg og flug fyrir stjórnarmenn sem fara á austur verða bókuð í dag. Íris, Ásgerður og Birna fara fyrir hönd stjórnar.
  2. Jólaglögg og afhending viðurkenningar fyrir fyrirmyndarverkefni fór fram í desember og gekk vel þó fámennt hafi verið í salnum. Ef til vill má rekja það til kórónuveirufaraldursins.
  3. Fræðslur sem eftir eru í vetur.
    1. Umræðufundur um 10-12 ára starf. Birna sér um hann og er viðburðurinn er tilbúinn. Hún er að vinna í kynningu og ætlar að setja inn í viðburðinn betri lýsingu.
    2. Fræðsla um starf með eldri borgurum er á dagskrá í mars. Gísli sér um þá fræðslu og er að skoða nokkra möguleika á erindum, þar á meðal átaksverkefni á Norðurlandi og þróun Samfélagshúsa í Reykjavík.
    3. Hringferð FFF á Norðurland. Verður farið á Dalvík og mun Ágúst taka að sér undirbúning á þeirri fræðslu. Verður í sambandi við Gísla á Dalvík.
    4. Fræðsla um útinám er á dagskrá í maí þar sem planið er hádegisfundur utandyra, eitthvað hagnýtt og skemmtilegt gert þar og rætt um útinám. Skoða samstarf við MÚ um þessa fræðslu.
  4. Önnur mál.
    1. Félagið sendi inn umsókn um áskrift að styrkjum hjá Erasmus+ vegna reglulegra utanlandsferða ásamt annarra kostnaðarsamra verkefna. Umsóknarfrestur var á gamlársdag 2021 og niðurstöðu má vonandi vænta í janúar.
    2. VAXA verkefninu er enn haldið opnu á meðan verið er að skoða þá möguleika sem það felur í sér til framtíðar.
    3. Stjórnin ætlar að óska eftir fundi með nýjum skóla- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni til að ræða við hann málefni vettvangs frístunda- og æskulýðsstarfs.

Fundi slitið kl. 09:40