“VERNDUM ÞAU!“ SAMANTEKT 

Samantekt frá Félagi fagfólks í frítímaþjónustu vegna námskeiðanna Verndum þau

Félag fagfólks í frítímaþjónustu í samstarfi við Menntamálaráðuneytið og höfunda bókarinnar Verndum þau, þær Ólöf  Ásta Farestveit og Þorbjörg Sveinsdóttir eru búin að halda tíu námskeið víðsvegar um landið á tímabilinu 5. október 2006 til 23. janúar 2007.

Staðir og dagsetningar:

  • Reykjanesbær 5. október
  • Vesturbyggð 9. nóvember
  • Árborg 16. nóvember
  • ÍTR 23. nóvember
  • Vopnafjörður 4. desember
  • Akureyri 11.-12. janúar fjögur námskeið
  • ÍTR Frístundaheimili Tónabæjar 22. janúar.

Heildarfjöldi þátttakenda er 256 manns og meðaltal á námskeiði 26. manns.

Samkvæmt úrvinnslu á matsblöðum sem þátttakendur útfylla í lok námskeiða þá fá námskeiðin mjög góða umsögn. Hér að neðan má sjá samantekt í prósentutölu á svari við spurningu eitt á matsblaði.

1.    Hversu gagnlegt telur þú námskeiðið vera fyrir þig sem starfsmann?

( 63% ) mjög mikið ( 32% ) mikið(5%  ) nokkuð(0%  ) lítið ( 0% ) mjög lítið

Með kæri kveðju,
F.h. Stjórn Félags fagfólks í frítímaþjónustu
Margrét Sigurðardóttir