HVER VINNUR MEÐ BÖRNUNUM OKKAR Í FRÍTÍMANUM?
Stjórn Félags fagfólks í frítímaþjónustu hefur ákveðið að efna til málþings undir heitinu "Hver vinnur með börnunum okkar í frítímanum?" laugardaginn 27. október n.k. frá kl. 13:00 til 17:00 á Grand Hótel. Málþinginu, sem er öllum opið, er ætlað að varpa ljósi á gildi og viðmið mismunandi faghópa sem starfa á vettvangi frítímans, sem og hvað kröfur félagasamtök, opinberir aðilar og aðrir sem bjóða upp á starf fyrir börn og unglinga í frítímanum gera til starfsmanna sinna eða leiðbeinenda. Dagskrá: 12:30 Skráning 13:00 Setning málþings, Margrét Sigurðardóttir, formaður FFF 13:15 Ragnar Snær Karlsson, fræðslufulltrúi KFUM og KFUK 13:30 Torfi Jóhannsson, svæðisfulltrúi Ungmennafélags Íslands 13:45 Andri Stefánsson, sviðsstjóri afrekssviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands 14:00 Bjarni Gunnarsson, formaður Félags íþrótta-, æskulýðs-og tómstundafulltrúa 14:15 Hulda Sólrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur í stjórn Bandalags íslenskra skáta 14:30 Kaffi 15:00 Umræður 16:00 Niðurstöður…