Fundur stjórnar í febrúar

Mætt eru: Ágúst, Elísabet, Gísli og Peta
Fimmtudagurinn 2. febrúar
Staður: Brauð og co. Laugavegi
Fundur settur kl. 09:00

  1. Síðasta fræðsla gekk ekki nógu vel þar sem mjög fáir mættu. Rætt hvort efnið hafi mögulega ekki vakið áhuga, hvort betra hefði verið að fræðslan væri fókusuð á hatursorðræðu, viðbrögð við henni o.þ.h. Einnig gæti veðrið hafa verið áhrifavaldur.
  2. Næsti viðburður verður umræðufundur með félagsfólki um utanlandsferð. Fundurinn fer fram á Zoom.
  3. Beiðni um umsögn barst félaginu frá Reykjavíkurborg varðandi nýja aðgerðaráætlun gegn rasisma í skóla- og frístundastarfi. Peta tekur að sér að veita umsögn fyrir hönd stjórnar.

Fundi slitið kl. 09:45