Fundur stjórnar í febrúar

Mættir eru: Gísli, Elísabet, Ágúst, Íris og Peta
Mánudagur 31. janúar 2021
Fundur settur kl. 9:00
Staður: Kaffitár, Nýbýlavegi

  1. Ákveðið að setja hluta fjármagns félagsins í sjóð hjá Íslandsbanka.
  2. Næstu fræðslur
    1. Janúarfræðslu félagsins sem átti að fara fram á austurlandi var frestað fram í febrúar vegna faraldursins.
    2. Næsta fræðsla sem fer fram 16. febrúar er umræðufundur um málefni 10 – 12 ára starfs. Undirb´úningur á góðu r´´oli.
    3. Fræðsla félagsins í mars er um starf með eldri borgurum og er undirbúningur kominn vel á veg. Fræðslan verður í raunheimum en einnig verður streymt frá henni. Gísli vinnur í að finna sal.
    4. Í apríl verður síðasti hlekkur hringferðarinnar þar sem boðið verður upp á fræðslu á norðurlandi, nánar tiltekið á Dalvík.

2. Aðalfundur félagsins fer fram 28. apríl og fer Elísabet í að finna sal/húsnæði og undirbúa fundinn.

3. Ákveðið var að félagið myndi taka upp á því að veita einum fagmanni á vettvangi hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi starf á liðnu ári. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að óskað verður eftir tilnefningum frá félagsmönnum og Ágúst ætlar að taka að sér það verkefni.

4. Sótt verður um styrk frá Erasmus+ vegna áætlaðrar utanlandsferðar sem farið verður í næsta haust.

Fundi slitið kl. 10:28.