Vegna umræðu um sameiningu grunnskóla og frístundaheimila

Vegna umræðu um sameiningu grunnskóla og frístundaheimila hefur stjórn félags fagfólks í frítímaþjónustu sent fjölmiðlum eftirfarandi tilkynningu:

Stjórn Félags fagfólks í frítímaþjónustu er sammála orðum formanns Skólastjórnarfélags Íslands í kvöldfréttum RÚV sunnudaginn 13. febrúarhttp://www.ruv.is/frett/fyrst-og-fremst-faglegur-avinningur um að það skili litlum sparnaði að sameina frístundaheimili og grunnskóla í Reykjavík. Stjórnin getur hinsvegar ekki verið sammála orðum hennar um að það sé faglegur ávinningur af sameiningunni. Á sínum tíma þótti faglegur ávinningur af því að flytja heilsdagsskóla grunnskólanna frá skólunum til Íþrótta- og tómstundasviðs og stofna frístundaheimili. Það er því erfitt að sjá hvernig það getur orðið faglegur ávinningur af því að fara til baka í sama horfið?

Það þótti faglegur ávinningur að skilja að starf skólans og frítímans en sú innleiðing átti sér stað frá 2002 til 2004. Megin ástæða innleiðingarinnar var gífurleg ánægja foreldra auk sýnilegs faglegs ávinnings með það tilraunaverkefni sem unnið var á vegum frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs í Breiðholti á árunum 2000 til 2002. Markmiðið var að efla starf frístundaheimilanna með þeirri hugmyndafræði sem fagstarf á vettvangi frítímans byggir á. Einnig var leitað til fyrirmynda frá öðrum Norðurlöndum til stuðnings við uppbyggingu starfsins. Frístundaheimilin eru hluti af starfsemi frístundamiðstöðvanna sem starfræktar eru í hverjum borgarhluta Reykjavíkurborgar. Í frístundamiðstöðvunum er markvisst unnið að því að efla starf frístundaheimilanna og styðja við fagvitund starfsmanna. Með því að færa frístundaheimilin yfir til skólanna væri í raun verið að segja að ekki sé pólitískur vilji fyrir því að unnið sé með börn sérstaklega á vettvangi frítímans heldur sé meiri hagur í því að samnýta starfsfólk skólanna óháð því hver fagvitund þeirra sé á starfi með börnum í frítímaþjónustu. Að lokum má nefna að menning frístundastarfs og skóla er ólík og ekki að ástæðulausu að starfandi er deild innan Háskóla Íslands sem byggir á að mennta fólk í þeim fræðum sem notuð eru á vettvangi frítímans.