Leiðbeinendanámskeið um efni bókarinnar Kompás

Félag fagfólks í frítímaþjónustu stendur fyrir leiðbeinandanámskeiði  um efni bókarinnar Kompás – mannréttindafræðsla fyrir ungt fólk – fimmtudaginn 24. febrúar 2011 kl.16-18:30 og föstudaginn 25. september kl. 9-16 í Hlöðunni við Gufunesbæ. Námskeiðið er ætlað fólki sem er vant að starfa með börnum og ungmennum á vettvangi frítmans.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Pétur Björgvin Þorsteinsson sem hefur mikla reynslu af notkun bókarinnar.

Námskeiðið kostar 2.000 kr. og innifalið í því er hádegismatur á föstudeginum og kaffitímar báða dagana. Meðlimir í félagi fagfólks í frítímaþjónustu fá eintak af bókinni Kompás sér að kostnaðarlausu  en einnig geta allir nálgast rafrænt eintak af bókinni á netinu.

Auglýsing um leiðbeinandanámskeið um efni bókarinnar Kompás

Skráning fer fram á [email protected]. Sendu nafnið þitt, kennitölu, símanúmer, netfang og upplýsingar um starfsstað fyrir 18. febrúar. Einungis 25 pláss!

Dagskrá:

Fimmtudagur,

24. febrúar 2011

16:00 Kynning á námskeiðinu, þátttakendum og þjálfara

16:30 Kompás – Yfirlit

17:30 Viðbrögð við kynþáttafordómum

18:30 Dagskrárlok

Föstudagur,

25. febrúar 2011

09:00 Upphitun

09:30 Fátækt og misskipting

10:45 Kaffihlé

11:00 Þemun í Kompás

12:00 Hádegishlé

13:00 Kynningar á sjö Kompás verkefnum

15:00 Kaffihlé

15:30 Lokaorð og mat, hugmyndir um framhald

17:00 Dagskrárlok

Athugið:

Kompásbókin er aðgengileg á vefnum http://vefir.nams.is/kompas/

Mikilvægt er að kynna sér starf Evrópu-ráðsins í þessu samhengi, sér í lagi mannréttindafræðslu, sjá: http://act4hre.coe.int/

Kompásbókin hefur verið gefin út á fjölda tungumála, sjá nánar á:http://eycb.coe.int/compass/

Mörg samtök og aðrir aðilar bjóða upp á námskeið þessu tengd víða erlendis: http://www.salto-youth.net/

Öflugur vefur um mannréttindamál er á slóðinni: http://www.hrw.org/

Myndband með tónlist Hjaltalín um Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu Þjóðanna er að finna á: http://www.youtube.com/watch?v=JsPZH5SDRRQ

Mannréttindaskrifstofa Íslands eru mikilvæg félagasamtök á Íslandi í þessu samhengi og er vefur þeirra: http://www.humanrights.is/

Þá er vert að benda á að Kompás á Íslandi er á Facebook.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Pétur Björgvin Þorsteinsson s. 864 8451