NÆSTI UMSÓKNARFRESTUR Í ÆSKULÝÐSSJÓÐ ER 1. FEBRÚAR

Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. febrúar 2009.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

  • · Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra. 
  • · Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða. 
  • · Nýjungar og þróunarverkefni. 
  • · Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði, né ferðir hópa.  Menntamálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.

Nánar á heimasíðu Menntamálaráðuneytisins.