VEL HEPPNAÐ MÁLÞING

Málþing FFF, Hver vinnur með börnunum okkar í frítímanum?, fór fram á Grand Hótel laugardaginn 27. október síðastliðinn.

Málþinginu, sem var öllum opið, var ætlað að varpa ljósi á gildi og viðmið mismunandi faghópa sem starfa á vettvangi frítímans, sem og hvað kröfur félagasamtök, opinberir aðilar og aðrir sem bjóða upp á starf fyrir börn og unglinga í frítímanum gera til starfsmanna sinna eða leiðbeinenda.

Stjórn FFF hafði leitað til Bandalags íslenskra skáta, Félags íþrótta, æskulýðs og tómstundafulltrúa, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, KFUM og KFUK og Ungmennafélags Íslands sem sendu fulltrúa sína á málþingið og kynntu hvernig þessum málum er háttað hjá sínu félagi/samtökum.

Hér fyrir neða birtum við glærur fyrirlesarana með góðfúslegu leyfi þeirra:

Setning málþings – Margrét Sigurðardóttir, formaður FFF

Ragnar Snær Karlsson, fræðslufulltrúi KFUM og KFUK

Torfi Jóhannsson, svæðisfulltrúi Ungmennafélags Íslands

Andri Stefánsson, sviðsstjóri afrekssviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

Bjarni Gunnarsson, formaður Félags íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa

Hulda Sólrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur í stjórn Bandalags íslenskra skáta

Eygló Rúnarsdóttir, varaformaður FFF, tók saman helstu niðurstöður málþingsins.